Fara í efni

Sjáumst á Akureyrarvöku í Hofi!

Akureyrarvaka í Hofi 2026
Akureyrarvaka í Hofi 2026

Pétur og úlfurinn, sena úr Skilaboðaskjóðunni, uppistand, sveitatónlist, klassík, lúðraþytur og margt fleira

Það verður nóg um að vera í Hofi á Akureyrarvöku og ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi!

Upptaktstónar Akureyrarvöku í Hofi hljóma á föstudagskvöld í Hömrum kl. 22 þegar Slagverksdúóið Puruñeka Duo spilar taktfasta og leikandi tónlist inní helgina fyrir gesti og gangandi.

Dagskráin á laugardaginn hefst kl. 13.15 Í Hamragili og lýkur með uppistandi Heimamanna sem hefst kl. 21. Tónlistarmaðurinn Jón Jónsson stígur fyrstur á stokk af sinni alkunnu snilld, Leikfélag Akureyrar býður Akureyringum og gestum þeirra uppá opna æfingu í Hamraborg á fjölskylduleikritinu Skilaboðaskjóðunni, auk þess að taka senu úr Fasteignamartröðinni og bruna á ógnarhraða yfir 120 ára sögu Samkomuhússins til upphitunar fyrir stórafmæli þess. Sinfóníuhljómsveit Norðurlands býður þessu næst heim og flytur hið sígilda og vinsæla fjölskylduævintýri Pétur og úlfinn í Hamraborg.

Kalli Örvars verður með ör-uppistand ásamt fjöldasöng í Hömrum og sveitatónlist mun í kjölfarið óma um húsið í flutningi tríósins Flökkuhjarta. Sópranrödd Mahaut og sellóundirleikur Steinunnar Arnbjargar gæða vel kunnum sönglögum nýja vídd þeim sem á hlýða og litríkir tónar Lúðrasveitar Akureyrar þjóta hressandi um æðar ungra sem aldna. DJ Ívar heldur uppi afmælispartýtónum á útisvæði Majó þar til Heimamenn mæta til leiks með ferskt uppistand og persónulegar pælingar.

Kista verður með aðlaðandi tilboð í tilefni Akureyrarvöku og Majó tekur þátt með girnilegum og öflugum hætti, enda fagnar staðurinn fimm ára afmæli.

Hér fyrir neðan má sjá nánari upplýsingar um hvern dagskrárlið okkar á Akureyrarvöku, allir viðburðir eru án endurgjalds.

Hlökkum til að sjá ykkur öll í Hofi.


Föstudagskvöld II 28. ágúst

Kl 22 || Ómur - Puruñeka Duo || Hamrar

Ómur slagverksdúó hefur Akureyrarvöku í Hofi með litríkri og líflegri tónleikadagskrá. Dúóið skipa Matiss Leo Meckl og Tirso Ortiz Garrigós.

Frekari upplýsingar hér

Laugardagurinn II 29. ágúst 

Kl. 13:15 || Jón Jónsson || Hamragil

Jón Jónsson slær taktinn í dagskrá Akureyrarvöku í Hofi með stuði og stemningu fyrir alla fjölskylduna af alkunnri snilld.

Frekari upplýsingar hér

Kl 14 || Opin æfing hjá Leikfélagi Akureyrar || Hamraborg

Kíktu á bak við tjöldin hjá LA! Gestum býðst að fylgjast með opnum æfingum á Skilaboðaskjóðunni og Fasteignamartröðinni auk þess sem leikhópurinn flytur vel valin lög úr 120 ára afmælissýningu Samkomuhússins.

Frekari upplýsingar hér

Kl 15 || Pétur og Úlfurinn || Hamraborg

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur hið sígilda ævintýri Pétur og úlfurinn. Verkið er frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Frekari upplýsingar hér

Kl 15 || Kalli Örvars hermir eftir og allir syngja með || Hamrar

Uppistand, eftirhermur og „singalong“! Kalli Örvars býður upp á bráðskemmtilega dagskrá þar sem salurinn tekur þátt í gleðinni.

Frekari upplýsingar hér

Kl 15:30 || Flökkuhjarta - sveitatónlist gömul og ný || Hamrar

Hrund Hlöðvers, Aðalsteinn Jóhannsson og Kristján Edelstein flytja gamla og nýja tónlist með rætur í sveitatónlist, í bland við frumsamin lög.

Frekari upplýsingar hér

Kl 16 || Lysting er sæt að söng || Hamrar
Mæðgurnar Mahaut og Steinunn Arnbjörg flytja íslenska hittara og sönglög fyrir sópran og selló.

Frekari upplýsingar hér

Kl 16:30 || Blásum í lúðra - Lúðrasveit Akureyrar || Hamragil

Lúðrasveit Akureyrar og glænýjir meðlimir hennar leika nokkra góða slagara í tilefni Akureyrarvöku.

Frekari upplýsingar hér

Kl. 17 || Dj Ívar || Majó

Dj Ívar heldur uppi stemmingunni frá kl. 17-23 í tilefni að fimm ára afmæli Majó.

Frekari upplýsingar hér

Kl. 21 || Heimamenn í Hofi - Uppistand || Hamrar

Heimamenn flytja uppistand þar sem áhorfendur mega búast við fjölbreyttu kvöldi með persónulegum pælingum, hversdagslegum uppákomum og sögum úr lífinu. Hlæjum saman að samböndunum, börnunum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður fær að gera grín að því.

Frekari upplýsingar hér

Til baka