Fara í efni

Leiklistarskóli LA

Skráningar eru hafnar í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar, einn skemmtilegasta skóla landsins!

Haustönn 2026 hefst 7. september og lýkur 4. desember.

Skráning hér! 


 Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður upp á markvisst nám í leiklist fyrir börn í 3.-10. bekk grunnskólanna. 

Einkunnarorð skólans eru: Leikgleði – Sköpun – Samvinna.

Markmið skólans er að þjálfa nemendur í grunnatriðum leiklistar auk þess að þau kynnist sjálfum sér betur, mannlegu eðli og samfélaginu. Þar að auki læra þau aga, umburðarlyndi og tillitssemi í gegnum hópavinnu sem snýr að sameiginlegu markmiði þátttakenda. Þá verður sérstaklega unnið að því að bæta sjálfsöryggi þeirra og finna styrkleika hvers nemanda.

Í ár verða fjórar deildir við skólann – Grunndeild, Miðdeild, Unglingadeild og Fullorðinsdeild. Frekari upplýsingar um deildirnar og áherslur þeirra má finna hér fyrir neðan auk mikilvægra dagsetninga.

Skólaárið skiptist í tvær 12 vikna annir, haustönn og vorönn. Á fyrri önn er lögð áhersla á að styrkja undirstöður í leiklist hjá nemendum og seinni önn fer í að æfa fyrir lokadag eða lokasýningu deildarinnar. Í ár verða unnin verk út frá samsköpun en þá vinnur hópurinn saman að því að búa til leiksýningu út frá sögu, ljóði, brandara, lagi eða í raun hverju sem er.


GRUNNDEILD – Grunnur að líkama og rödd

Fyrir börn fædd 2016-2018

Kennsla miðar að því að kynna nemendum fyrir mikilvægi raddar og líkama í leikhúsvinnu og grunnatriðum í beytingu þeirra þátta. Þar að auki verður unnið með einbeitingu, rýmisvitund, ímyndunaraflið, samvinnu og sjálfið. Kennsla fer fram í formi leikja, æfinga og samtals. Í lok annar fá nemendur að læra hvernig prufur ganga fyrir sig með því að fara í svokallaðar prufuprufur í næstsíðasta tímanum. Nánari upplýsingar um námið má finna í Kennsluskrá hér til hliðar.

Grunndeild hópur A – þriðjudagar kl. 15:10-16:10

Grunndeild hópur B – miðvikudagar kl. 15:10-16:10

Grunndeild hópur C - fimmtudagar kl. 15:10-16:10

Kennari: Margrét Sverrisdóttir.

Skólagjöld: 60.700 kr. fyrir önnina

Hægt er að nota frístundarstyrk sem hluta af greiðslu.

Boðið er upp á 10% systkinaáfslátt í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

 

MIÐDEILD – Líkaminn og röddin í frásagnarforminu

Fyrir börn fædd 2014-2015

Kennsla miðar að því að auka þekkingu nemenda á líkama og röddinni, samvinnu, auk þess sem byrjað verður að skoða og læra um frásagnarform leikhússins (grunnþætti leikverks – upphaf-miðja-endir, framvinda, innihald, persónur). Kennsla fer fram í formi leikja, æfinga, verkefna og samtals. Í vetur vinna nemendur sýningu með aðferðum samsköpunnar. Í lok annar fá nemendur að læra hvernig prufur ganga fyrir sig með því að fara í svokallaðar prufuprufur í næstsíðasta tímanum. Nánari upplýsingar um námið má finna í Kennsluskrá hér til hliðar.

Miðdeild hópur A – mánudagar kl. 16:30-18:00

Miðdeild hópur B – þriðjudagar kl. 16:30-18:00

Kennari: Kolbrún Lilja Guðnadóttir

Skólagjöld: 69.200 kr. fyrir önnina

Hægt er að nota frístundarstyrk sem hluta af greiðslu.

Boðið er upp á 10% systkinaáfslátt í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

 

UNGLINGADEILD – Grunntækni leiklistar og notkun hennar í persónusköpun og frásögn.

Fyrir unglinga fædda 2011-2013

Einföld heimavinna verður sett fyrir til að brúa bilið á milli tíma. Það á ekki einungis við um handritsvinnu heldur einnig efni tengt tímanum sem þau voru í síðast. Nemendur hafa oft nýtt námskeiðið sem valfag.

Kennsla miðar að því að þjálfa nemendur í persónusköpun, frásagnarformum, að nota líkama og rödd, að þjálfa gagnrýna hugsun, sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu. Kennsla fer fram í formi leikja, æfinga, verkefna og samtals. Yfir önnina vinna nemendur handrit með aðferðum samsköpunnar sem verður svo æft á vorönn og sýnt á lokasýningum LLA í maí. Í lok annar fá nemendur að læra hvernig prufur ganga fyrir sig með því að fara í svokallaðar prufuprufur í næstsíðasta tímanum. Nánari upplýsingar um námið má finna í Kennsluskrá hér til hliðar.

Unglingadeild hópur A - Miðvikudaga kl. 16:20-18:20

Unglingadeild hópur B – Föstudaga kl. 14:10-16:10

Kennari: Jenný Lára Arnórsdóttir

Skólagjöld: 76.700 kr. fyrir önnina

Hægt er að nota frístundarstyrk sem hluta af greiðslu.

Boðið er upp á 10% systkinaáfslátt í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

 

FULLORÐINSDEILD

IMPROV – BYRJENDUR

Farið er yfir grunnreglur spunans á skemmtilegan og uppbyggilegan hátt, karaktersköpun og uppbyggingu senu. Kynnt er hugmyndafræðin um „Já og“ en hún nýtist ekki aðeins á sviði leiklistar heldur í allri skapandi vinnu sem og í lífinu sjálfu.

Spuninn ögrar okkur og kennir okkur að vera í núinu.

Engar hæfnikröfur.

Fyrir hverja: Alla áhugasama, 18 ára og eldri.

Kennari: Hólmfríður Hafliðadóttir

Tímasetning: Þriðjudagar kl. 19:30-22:30 og fimmtudagar kl. 19:30-22:30

20.-17. október

Hvar: Menningarhúsinu Hofi - Undirheimum

Skráning: Abler

Verð: 59.000 kr.

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á lla@mak.is

 

Kennsla fer fram Undirheimum sem er kennslurými okkar í kjallaranum á Hofi.

Við hlökkum til að hitta fyrrum og nýja nemendur við nýtt upphaf Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

Skólastjóri Leiklistarskólans er Jenný Lára Arnórsdóttir.

Mögulegt er að hópum verði fjölgað eða þeir sameinaðir eftir fjölda umsókna.

Lágmarksfjölda skráninga þarf til að hópur haldist inni.

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á lla@mak.is