Fara í efni

Fullorðinsnámskeið hefst 11. mars!

LEIKLISTARNÁMSKEIÐ FYRIR FULLORÐNA

Byrjunarnámskeið (Ath. upplýsingar um framhaldsnámskeið fyrir fullorðna neðar á síðunni) 
Hægt að sjá yfirlit hér: www.abler.io/shop/mak 

Kallar sviðsljósið á þig en þú veist ekki hvar þú átt að byrja?

Ertu feimin/n og langar til að fá þjálfun í að standa frammi fyrir fólki?

Langar þig að fara örlítið út fyrir þægindaramman?

Finnurðu hamingjuna í að standa á leiksviðinu?

Sama hvað af þessu á við þig þá ætti leiklistarnámskeið hjá Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar að höfða til þín. Hóparnir eru ekki of stórir sem þýðir að námskeiðið er einstaklingsmiðað. Kennarinn tekur mið af þörfum hvers og eins.

 

 

 

Farið verður í skemmtilegar og krefjandi æfingar og leiki sem efla sjálfstraust, stækka þægindarammann og virkja ímyndunaraflið. Unnið verður með virkt ímyndunarafl og innri heima persóna.

Taktu skrefið í öruggu umhverfi á leiklistarnámskeiði fyrir fullorðna sem verður haldið í október-nóvember hjá Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

Unnið verður út frá hópnum og hverjum einstakling fyrir sig og er þetta því fullkomið fyrir byrjendur sem og lengra komna!

Fyrir hverja: Alla áhugasama, 18 ára og eldri.

Kennari: Sesselía Ólafs

Tímasetning: Þriðjudagar kl. 19:30-21:30 frá 21. október - 18. nóvember

Hvar: Menningarhúsinu Hofi - Undirheimum

Skráning: Abler

Verð: 46.500 kr.

Lengd: 10 klst Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á lla@mak.is

 

LEIKLISTARNÁMSKEIÐ 2 FYRIR FULLORÐNA

-textagreining og spuni

Hefur þú áhuga á sviðslist/ritlist/frásagnarlist?

Finnst þér gaman að standa á sviði en ert óviss með hvað persónan er að hugsa?

Langar þig að fá aukna innsýn í textavinnu og senugreiningu?

Langar þig að fara örlítið út fyrir þægindarammann?

Sama hvað af þessu á við um þig þá ætti leiklistarnámskeið hjá Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar að höfða til þín. Kennt er í litlum hópum sem þýðir að kennarinn getur tekið mið af þörfum hvers og eins.

Farið verður í skemmtilegar og krefjandi æfingar og leiki sem efla sjálfstraust, stækka þægindarammann og virkja ímyndunaraflið. Kennt verður einfalt kerfi sem hjálpar til við að skýra upplifanir og viðbrögð skáldaðra persóna. Kerfið nýtist bæði í textagreiningum og spuna og er frábær grunnur bæði fyrir leikara, höfunda og alla þá sem hafa áhuga á frásagnarlist.

Þetta er grunnnámskeið í textagreiningu og er því fullkomið fyrir þá sem hafa reynslu af leiklist eða verið á fyrri leiklistarnámskeiðum.

Taktu skrefið í öruggu umhverfi á leiklistarnámskeiði fyrir fullorðna sem verður haldið í október - nóvember hjá Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar.

Fyrir hverja: Alla áhugasama, 18 ára og eldri.

Kennari: Sesselía Ólafs

Tímasetning: Miðvikudögum kl. 19:30-21:30 frá 22. október - 19. nóvember

Hvar: Menningarhúsinu Hofi - Undirheimum

Skráning: Abler

Verð: 46.500 kr.

Lengd: 10 klst

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á lla@mak.is