Sumarnámskeið í leiklist!
Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður upp á skemmtilega leiklistarsmiðju þar sem nemendur fá að kynnast grunnatriðum í leiklist, öðlast sjálfstraust og þor auk þess sem leikgleðin verður í fyrirrúmi.
Farið verður í æfingar og leiki sem hjálpa til við að auka samvinnu, leikgleði, sköpunargleði og leyfa ímyndunaraflinu að leika lausum hala. Þá verður farið í æfingar sem eru grunnur að spuna og nemendum gefnar nokkrar spunasenur til að spreyta sig á.
Fjögur námskeið eru í boði og það má skrá nemendur á eitt námskeið eða öll og allt þar á milli. Hvert námskeið er fjórir dagar í senn.
Hvert námskeið kostar 15.000 kr.
Fyrir börn fædd 2015-2018.
Það verða tvö námskeið í júní:
10. - 14. júní
16.- 20. júní (frí 17. júní)
Svo verða líka tvö námskeið í ágúst:
5.-8. ágúst
11.-14. ágúst
Kennt á milli kl. 9-12 (muna að koma með smá nesti fyrir morgunhressingu).
Kennsla fer fram í Hofi
Kennarar eru Margrét Sverrisdóttir og Jenný Lára Arnórsdóttir
Fyrirspurnir má endilega senda á lla@mak.is