Puruñeka Duo, slagverksdúó skipað þeim Matiss Leo Meckl og Tirso Ortiz Garrigós, býður upp á litríka og kraftmikla tónleikadagskrá með verkum eftir Philip Glass, Anders Koppel, Maurice Ravel, David Lang og Gene Koshinski. Með marimbu, víbrafóni, trommum og fjölbreyttum slagverkshljóðfærum kanna þeir fjölbreyttan hljóðheim þar sem rytmi, melódía, hljómar og ómar koma saman á lifandi og skemmtilegan hátt. Puruñeka Duo hefur komið fram víða í Evrópu og á Íslandi, unnið með tónskáldum, dönsurum og listafólki úr ólíkum listgreinum og unnið til verðlauna í Grachtenfestival-keppninni í Hollandi. Tónleikarnir gefa áheyrendum tækifæri til að upplifa slagverk í nýju ljósi ekki aðeins sem rytmísk hljóðfæri heldur sem fjölbreyttan, melódískan og sjónrænan tónlistarheim.
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar
Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.