Kalli Örvars hermir eftir og allir syngja með
Karl Örvarsson eða Kalli Örvars er einn af laukum Akureyrar í tónlist og nánast óþarft að kynna. Nú mætir Kalli á Akureyrarvöku með það sem hann kallar "StandupSingalong" sem eins og titillinn gefur til kynna er bland af uppistandi, eftirhermum og tónlist, þar sem hann hermir eftir frægum íslenskum poppurum og fær svo salinn til að syngja með í þeirra frægustu lögum. Geggjað skemmtilegt prógram þar sem salurinn tekur fullan þátt í gleðinni! Það má því búast við að margmennið í Hömrum taki vel undir hjá Kalla.
Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarbæ og í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar.
Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.