Fara í efni
Dags Tími
29 .ágú 14:00
Verð: Frítt inn
Opin æfing LA á Skilaboðaskjóðunni og kynning á Fasteignamartröðinni og 120 ára afmæli Samkomuhússins
 
Kíktu á æfingu á hinni ástsælu fjölskyldusýningu Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson sem frumsýnd verður í febrúar. Einnig verður tekin stutt sena úr Fasteignamartröðinni, sem er beittur og meinfyndinn spegill á raunveruleika ungs fólks í dag í fáranlegu ferðalagi um fasteignamarkaðinn. Að endingu brunar leikhópur LA á ógnarhraða í gegnum 120 ára sögu Samkomuhússins til að hita upp fyrir stórafmæli Samkomuhússins í janúar.
 

Frítt er á alla viðburði Akureyrarvöku í Hofi.