Fara í efni

Mikið fjör framundan í Hofi

Mikið fjör var í Hofi um helgina á velheppnuðum og stappfullum tónleikum Jónasar Sig og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hamraborg. Hratt seldist upp á tónleikana og færri sem komust að en vildu og stemningin í salnum frábær.

Stuðið er þó rétt að byrja og strax í upphafi október mun hljómsveitin  Dúndurfréttir hrista af sér covidslenið og flytja vel valin Pink Floyd verk. 

Helgina eftir er komið að Ara Eldjárn og Jóni Ólafs sem ætla að fara í gegnum stórbrotinn feril þess fyrrnefnda í tali og tónum. Spjalltónleikaröðin Af fingrum fram hefur slegið í gegn undanfarin tólf ár og hér er kvöldstund sem er engri lík.

Laugardagskvöldið 9. október mun enginn annar en Friðrik Ómar fagna fertugs afmæli sínu á sviði Hamraborgar. Friðrik Ómar mun eflaust fylla salinn og ljóst að hafa verður hröð handtök ætli fólk að tryggja sér miða.

Annað afmælisbarn, stórstjarnan Pálmi Gunnarsson, blæs til tónleika 23. október. Tónlistarmaðurinn fagnar 70 ára afmæli sínu en fáir íslenskir listamenn eiga jafn langan og farsælan feril að baki og Pálmi sem mun halda upp á stórafmælið með söngperlum sem hvert mannsbarn þekkir.

Það er því ljóst að það verður úr nógu að velja í Hofi næstu vikurnar. Stórafmæli, uppistand, glens, grín og geggjuð tónlist!

Miðasala á alla viðburðina er í fullum gangi á mak.is.

 

 

 

 

 

 

Til baka