Fara í efni
Dags Tími
09 .okt '21 20:00

Ágætu gestir Hamraborg er eitt sóttvarnarhólf sem tekur 500 manns í sæti og því þarf ekki að fara í hraðpróf fyrir tónleikana, en grímuskylda er á meðan á viðburði stendur. Gestir eru hvattir til að viðhafa einstaklingsbundnar sóttvarnir og gæta að fjarlægðarmörkum í almenningsrými. Veitingasala er opin fyrir tónleika og í hléi.

Elsku fólk!

Það er ekki annað hægt en að blása til veislu í Hofi!

Í tilefni af fertugs afmælinu mínu þann 4. október nk. ætla ég að stíga á svið í Hofi ásamt hópi vina og samstarfsmanna laugardaginn 9. október og skauta í gegnum efnisskrá sem ég hef valið sérstaklega að þessu tilefni. Ég ætla að hleypa söngvaranum út með dassi af tónleikahaldaranum og fá til mín gesti sem ég hef verið svo lánsamur að kynnast og vinna með í gegnum tíðina. Þá má ekki gleyma hljómsveit Rigg viðburða sem er mín uppáhalds sveit. Eins þætti mér virkilega gaman að fylla salinn af fólki sem hefur fylgt mér í blíðu og stríðu á þessum 25 árum sem ég hef staðið á sviði.

 

Með von um að sjá ykkur sem flest!
Kveðja, Friðrik Ómar

 

Miðasala hefst föstudaginn 10. september kl. 12:00 á mak.is