Fara í efni
Dags Tími
20 .maí '21 19:00

Einstök matarupplifun í Hofi

Fimbul Cafe býður upp á Innsæi, sjö rétta smakkseðil, í Menningarhúsinu Hofi fimmtudagskvöldið 20. maí. Smakkseðillinn samanstendur af sjö ólíkum réttum sem allir eiga það sameiginlegt að fanga matarhefðir Eyjafjarðar á einstakan hátt. Hægt er að panta vínpörun með matnum þar sem sérfræðingar Fimbul sérvelja hágæða vín sem passa einstaklega vel með hverjum rétti fyrir sig. Um er að ræða sex mismunandi tegundir af náttúruvínum og einn kokteil.

Verð fyrir matarupplifun er 12.500 á mann en 22.500 með vínpörun og kokteil.

Fimbul er staðsettur hjá Lamb-Inn í Eyjafirði og er innblásinn af gömlum hefðum og villtri náttúru Íslands. Kokkurinn Matt og þjónninn Aurora koma frá Portland í Oregon í Bandaríkjunum en þau urðu ástfangin af Íslandi og sögu og matarhefðum landsins. Matt lærði á Dill í Reykjavík og nokkrum af bestu veitingstöðum í Portland og Aurora hefur starfað í 15 ár sem barþjónn út um allan heim.

Fimbul verður fyrsti veitingastaðurinn til að bjóða upp á „pop up“ matarupplifun í Hofi. „Við erum mjög spennt að fá þau í hús og fá inn spennandi og nýstárlega matargerð þar sem lögð er áhersla á ferskan mat úr héraði,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir framkvæmdarstjóri Menningarfélags Akureyrar.

Fleiri veitingastaðir munu í framtíðinni bjóða upp á matarupplifun í Hofi. Fimbul ríður á vaðið og mun bjóða upp á ljúffeng matarævintýri með fókus á hráefni úr héraði í maí, júní og júlí. Fylgstu með á mak.is.