Fara í efni

Við leitum að Roxy!

Leikfélag Akureyrar frumsýnir söngleikinn CHICAGO í Samkomuhúsinu í janúar 2023. Við leitum að leikkonum 25-35 ára í hlutverk ROXY. 

Skráning í prufur HÉR.

 

Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma. Hann var frumsýndur á Broadway árið 1975 og endurgerður árið 1996 en sú uppfærsla hefur gengið fyrir fullu húsi síðan.

Meðal þekktra laga úr Chicago eru; All that jazz, Funny honey, Mr Cellophane ofl.

Söngleikurinn gerist á 3 áratug liðinnar aldar í hinni iðandi og spilltu Chicagoborg og fjallar um siðlausu glæpakvendin Velmu Kelly og Roxy Hart. Þær eiga sér þann draum heitastan að verða frægar og til að ná athygli fjölmiðla svífast þær einskis. Beittur, fyndinn og seiðandi söngleikur í frábærri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar.

Ef þú ert leikkona sem er tilbúin að taka þátt í æfinga- og sýningarferli frá nóvember og fram á vormánuði, þá endilega skráðu þig!

Þórunn Geirsdóttir sýningastjóri gefur allar nánari upplýsingar á netfanginu thorunn@mak.is

Til baka