Fara í efni

Veittir hafa verið styrkir úr listsjóðnum VERÐANDI fyrir árið 2026-2027

Menningarfélag Akureyrar mun taka vel á móti VERÐANDI styrkþegum komandi starfsárs.
Menningarfélag Akureyrar mun taka vel á móti VERÐANDI styrkþegum komandi starfsárs.

Veittir hafa verið átta styrkir til viðburðahalds á komandi starfsári Menningarfélags Akureyrar. Styrkþegarnir bjóða gestum sínum og Menningarhússins Hofs uppá spennandi, fjölbreytta og nýstárlega viðburði fyrir öll skynfærin. Frumsamið efni í tónlist og sviðslist og glænýjar útsetningar í bland við kunnuglegt efni fyrir alla aldurshópa. Hér má nefna óperutónlist, sónótu fyrir fiðlu, slagverksdúó í sambland við dans og raftónlist, djass, frumflutningur nýrra kórverka, ásamt popptónlist og teiknimyndalaga fyrir alla fjölskylduna.

Megintilgangur Verðandi listsjóðs er að styrkja listafólk til að nýta Menningarhúsið Hof sem vettvang fyrir listsköpun sína. Listsjóðurinn á að auðvelda ungu listafólki og þeim sem starfa utan stofnana að nýta sér þá fyrirmyndaraðstöðu sem húsakynni Menningarfélags Akureyrar búa yfir, auk þess að stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum og nýta þá möguleika sem þar eru fyrir fjölbreytta viðburði. Akureyrarbær, Menningarfélagið Hof og Menningarfélag Akureyrar standa á bak við Verðandi listsjóð.

„Það var afar skemmtilegt að sjá fjölbreytni umsóknanna ár, sjá metnað listafólksins og ungu grasrótarinnar sem vill nýta sér aðstöðuna hér í Menningarhúsinu Hofi fyrir þeirra flottu, forvitnilegu og krefjandi viðburði. Sköpunargyðjan og atorkusemin koma hér saman í eina sæng í ólíkum og spennandi viðburðum sem munu án efa laða að sér breiðan hóp gesta. Starfsfólk Menninghússins Hofs hlakkar til að taka á móti þeim í hús.“ segir Kristín Sóley Björnsdóttir viðburðastjóri Menningarfélags Akureyrar og verkefnastjóri VERÐANDI listsjóðs.

Styrkþegarnir átta munu standa fyrir fjölbreyttum viðburðum í Menningarhúsinu Hofi. Allir viðburðirnir verða sýnilegir á mak.is, þar má finna nánari upplýsingar.

 

Lýdía Rós Björnsdóttir Waage

Íslenskar jazz perlur – 8. október 2026

Kammerkór Norðurlands

Nýkveikt tungl – 11. október 2026

Matiss Leo Meckl & Puruñeka Duo

Afnám tilviljunar – 12. nóvember 2026

Guðrún Ösp Sævarsdóttir

Aríur örlaganna – 15. nóvember 2026

Áki Frostason

Draumahliðið: Fyrirlestur til uppfræðslu einstaklingsins á nýjustu vendingum innan dulrænnar sagnfræði – 1. apríl 2027

Ingibjörg Azima

Urta - söguljóð – 18. Apríl 2027

Jónína Björt Gunnarsdóttir

Teiknimyndalögin okkar – 9. maí 2027

Sólrún Svava Kjartansdóttir

Sólrún Svava og rómantíska fiðlan – 13. júni 2027

Til baka