Þórey, Katrín Mist, Jónína Björt og Urður leika í Litlu Hryllingsbúðinni
24.05.2024
Leik- og söngkonurnar Þórey Birgisdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Katrín Mist Haraldsdóttir og Urður Bergsdóttir leika í söngleiknum Litla Hryllingsbúðin sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í október!
Þegar hefur verið tilkynnt að Kristinn Óli Haraldsson mun leika Baldur, Birta Sólveig Söring Þórisdóttir Auði, Arnþór Þórsteinsson Markús og Ólafía Hrönn Jónsdóttir tannlæknirinn. Þórey, Jónína Björt, Katrín Mist og Urður leika önnur hlutverk í söngleiknum.
Leikstjóri er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, Bergur Þór Ingólfsson.
Forsölutilboð er í fullum gangi á mak.is!