Fara í efni

Skráning er hafin í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar

Skráning er hafin á vorönn Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar!

Leiklistarskóli Leikfélags Akureyrar býður alla krakka frá 2. og upp í 10. bekk grunnskóla velkomna í faglegan og skemmtilegan leiklistarskóla. Í skólanum læra börnin öll helstu undirstöðuatriði leiklistar en fyrst og fremst miðar námið að því að nemendur byggi upp sjálfstraust, hugrekki, aga og tækni, allt með leikgleðina í fyrirrúmi.

Kennsla Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar á vorönn 2021 hefst 18. janúar og lýkur í lok apríl og fer fram í Deiglunni í Listagilinu, beint á móti Listasafninu. Nánari upplýsingar og skráning hér.

Til baka