Fara í efni

Opið fyrir umsóknir í VERÐANDI – listsjóð

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í VERÐANDI – listsjóð fyrir tímabilið 1. september 2019 til 31. júlí 2020.

Sjóðurinn veitir styrki til viðburða í Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu. Helstu markmið hans eru að auðvelda ungu listafólki og þeim sem standa utan stofnanna að nýta sér þá fyrirmyndar aðstöðu sem Samkomuhúsið og Hof bjóða upp á, stuðla að fjölbreytileika í listviðburðum í húsunum og nýta möguleika þeirra sem best. 

Styrkur til verkefnis gengur til kostnaðar vegna afnota af salarkynnum, grunntæknibúnaði, tækniþjónustu og af auglýsingu í ljósakassa.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 8. maí 2019. Skráning og nánari upplýsingar eru hér

Listsjóðurinn VERÐANDI er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélags Akureyrar og Menningarfélagsins Hofs.

 

Til baka