Fara í efni

Listamannaspjall með Aðalheiði S. Eysteinsdóttur

 

Á sunnudaginn þann 9. júlí kl. 14 býður Aðalheiður S. Eysteinsdóttir gestum og gangandi að spjalla við sig um yfirstandandi sýningu sína Vegamót. Sýningin er sumarsýning Hofs og mun standa til 18. ágúst. Aðalheiður mun fara yfir gerð verka sinna, þróun, hugmyndir og áframhaldandi vinnu.

Hér gefst gestum tækifæri á að varpa fram spurningum og jafnvel hugmyndum og vera þannig í beinum samræðum við Aðalheiði.

Hér má lesa meira um sýningu Aðalheiðar og örlítið meira um listakonuna sjálfa 

Verið öll hjartanlega velkomin!

Til baka