Fara í efni

Skráning hafin í prufur Leikfélags unga fólksins

Prufurnar fara fram í Samkomuhúsinu helgina 29. og 30. júní.
Prufurnar fara fram í Samkomuhúsinu helgina 29. og 30. júní.

Skráning er hafin í prufur Leikfélags unga fólksins en Menningarfélag Akureyrar býður sjö krökkum vinnu í sumar við leikfélagið.

Leikfélagi unga fólksins er nýtt atvinnuleikhús á Akureyri fyrir krakka fædda 2003-2005 þar sem krakkarnir fá tækifæri til að vinna í faglegu umhverfi og segja sögur úr sínum raunveruleika.

Verkið sem tekið verður fyrir í sumar fjallar um þær margslungnu hindranir og áskoranir sem móta sjálfsmynd unglingsáranna eins og t.d. einelti, kvíði, líkamsímynd, kynvitund, samfélagsmiðlar og almenn samskipti við jafningja sem og fullorðna.

Æft verður í júlí og ágúst og frumsýnt í lok ágúst 2019  í Samkomuhúsinu. Leikstjóri verður leikkonan og leiklistarkennarinn Vala Fannell.

Prufurnar fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri helgina 29. og 30. júní þar sem sjö ungmenni verða valin til að fara með hlutverk sýningarinnar.

Skráning í prufurnar er HÉR

Nánari upplýsingar gefur Vala Fannell, leikstjóri. Netfang: valafannell@gmail.com

Til baka