Fara í efni

Áheyrnarprufur fyrir Vorið vaknar

Áheyrnarprufurnar fara fram í Reykjavík 17. og 18. maí og á Akureyri 20. og 22. maí.
Áheyrnarprufurnar fara fram í Reykjavík 17. og 18. maí og á Akureyri 20. og 22. maí.

Leikfélag Akureyrar stendur fyrir áheyrnarprufum fyrir söngleikinn Vorið vaknar (e. Spring Awakening) í maí. Æskilegur aldur þátttakenda er 17-27 ára.

Áheyrnarprufurnar fara fram í Reykjavík 18. og 19. maí og á Akureyri 20. og 22. maí. Áhugasömum er bent á að skrá sig HÉR en þar eru frekari upplýsingar og slóð á þau lög sem þátttakendur þurfa að kunna fyrir prufuna. Einnig verður sena úr verkinu send í tölvupósti til allra þátttakenda. Í prufunum verður prufað í leik, söng og dansi. Þátttakendur eru beðnir um að koma vel undirbúnir til leiks.
 

Vorið vaknar er margverðlaunaður söngleikur sem byggður er á samnefndu þýsku leikriti frá 1891 eftir Frank Wedekind og fjallar um tilfinningarót, sjálfsuppgötvun og fyrstu kynlífsreynslu unglinga í afturhaldssömu og þröngsýnu samfélagi 19. aldarinnar. 

Uppfærsla söngleiksins á Broadway árið 2006, með leikkonuna Leia Michele innanborðs, hlaut átta Tony Awards og þar á meðal sem besti nýi söngleikurinn. Uppsetningin vann þar að auki fjölda annarra verðlauna og tilnefninga.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, mun leikstýra verkinu en listrænir stjórnendur eru þeir sömu og í söngleiknum Kabarett sem Leikfélag Akureyrar setti upp í byrjun þessa leikárs. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson verður tónlistarstjóri, Auður Ösp Guðmundsdóttir sér um leikmynd og búninga, Gunnar Sigurbjörnsson um hljóðið, Ólafur Ágúst Stefánsson lýsinguna og danshöfundur verður Lee Proud.

Vorið vaknar verður frumsýnt í Samkomuhúsinu á Akureyri í janúar 2020.

Til baka