Fara í efni
Dags Tími
11 .des 19:00
12 .des 19:00
12 .des 22:00
Verð frá 13.999 kr.

Vitringarnir 3 koma til byggða í desember og færa landsmönnum öllum til sjávar og sveita fruntalega jólaskemmtun að vanda.

Vinirnir og gullbakarnir Eyþór Ingi, Friðrik Ómar og Jógvan Hansen stíga á stokk í nýrri og sprenghlægilegri sýningu sem er uppfull af gríni, grúvi og gæsahúði! (Afsakið. Jógvan getur ekki fallbeygt orðið Gæsahúð rétt.)

Sem fyrr munu óvæntir gestir stíga á svið en tónlistarstjórinn Ingvar Alfreðsson mun stjórna hljómsveit Vitringanna af sinni vestfirsku snilld. Ath! Sýningin er ekki við hæfi miðaldra kvenna.

Skráðu þig á póstlista Vitringanna til að tryggja þér aðgengi að forsölunni sem verður 28. ágúst kl. 11:00 á vitringarnir3.is Almenn miðasala hefst 1. september kl. 11:00.

Ekki láta þig vanta, drífa sig og panta!