Fara í efni
Dags Tími
25 .ágú '18 13:30

Vísinda Villa þekkja allir krakkar. Vísindabækurnar hans hafa kveikt forvitni og áhuga á vísindum hjá þúsundum krakka og von er á fimmtu bókinni í haust.

Hann mætir í Hof með töskuna fulla af allskonar sniðugu dóti og ætlar að gera magnaðar tilraunir og spjalla um vísindi, lífið og listina – og alveg pottþétt um rafmagnsgítara.

Þetta verður sturlað stuð.

 

Tvær sýningar verða á dagskrá, klukkan 13.30 og 15.30. Enginn aðgangseyrir - allir velkomnir. 

 

Vísindasýning Villa er í boði Menningarfélags Akureyrar og Akureyrarvöku.