Fara í efni
Dags Tími
09 .sep '23 20:00

Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen halda uppá 10 ára afmæli tónleikana VIÐ EIGUM SAMLEIÐ með lokatónleikum í Hofi þann 09.sept kl.20:00 Þessir geysivinsælu tónleikar seldust upp í Eldborg í haust og nú fá norðlendingar að njóta afmælisins. Þarna verða flutt öll vinsælustu lögin þeirra frá upphafi og nokkur ný.

Þau Jógvan, Guðrún og Sigga flytja þessi lög einstaklega vel og hljómsveitin samanstendur af einvala liði tónlistarmanna í fremstu röð.

Á dagskránni eru meðal annars lögin : Dagný, Heyr mína bæn, Barn, Ég er komin heim , Kveiktu ljós, Bjartar vonir, Lítill fugl, Maria Isabel, Þín innsta þrá og fleiri perlum úr íslenskri dægurlagasögu.

Einstaklega góð og ljúf stemmning hefur einkennt þessa tónleika, því ekki aðeins syngja þau lögin sem allir elska og þekkja, heldur segja þau líka skemmtilegar sögur sem tengjast lögunum, sögur úr bransanum og síðast en ekki síst gera þau svo grín hvert að öðru.

Það eru sem sagt 10 ár síðan þríeykið blés til þessara tónleika, þar sem gömlu góðu íslensku dægurlögin eru í öndvegi, og skemmst frá því að segja að uppselt hefur orðið á hverja einustu tónleika í Salnum í Kópavogi.

Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.