Fara í efni
Dags Tími
09 .mar '19 20:00
10 .mar '19
11 .mar '19
12 .mar '19
13 .mar '19
14 .mar '19
15 .mar '19
16 .mar '19
17 .mar '19
18 .mar '19
19 .mar '19
20 .mar '19
21 .mar '19
22 .mar '19
23 .mar '19

Leikfélag Menntaskólans á Akureyri setur nú upp sína 70. sýningu, söngleikinn Útfjör sem er nýstárlegur söngleikur um eitthvað sem snertir okkur öll – okkar eigin fjölskyldu. 

 

Útfjör var sigurvegari á Tony-verðlaununum 2015 og vann þar á meðal verðlaun fyrir besta handrit og bestu tónlist og var auk þess valinn besti söngleikurinn það árið.

 

Við hittum Alison á þremur mismunandi aldursskeiðum. Minningar hennar um barnæskuna á áttunda áratugnum á útfararstofu föður síns fléttast við líf hennar þegar hún flytur burt til að fara í háskólanám, ástarsamband hennar og upplifun hennar af því að koma út úr skápnum.

Á ferðalagi á milli fortíðar og nútíðar endurupplifir Alison einstök uppvaxtarár sín þar sem hún leikur sér á útfararstofu fjölskyldunnar, árin sem hún horfist í augu við kynhneigð sína og reynir svo að svara spurningum um duldar hvatir föður síns. Útfjör er upplífgandi og opinskár söngleikur um fjölskyldu sem þú hefur aldrei séð áður en er kannski líkari þinni eigin fjölskyldu en þú þorir að viðurkenna.

 

 

Höfundar: Jean Tesori og Lisa Kron

Leikstjóri: Anna Gunndís Guðmundsdóttir

Þýðing á texta: Anna Gunndís Guðmundsdóttir

Þýðing á söngtextum: Einar Aðalsteinsson

Byggt á bókinni Fun Home: A Family Tragicomic eftir Alison Bechdel