Fara í efni
Verðandi
Dags Tími
15 .mar '24 20:00

Úr tóngarðinum er samstarfsverkefni Sigríðar Huldu Arnardóttur söngkonu og Brynjólfs Brynjólfssonar gítarleikara.

Sigríður nam klassískan söng við Tónlistarskóla Eyjafjarðar og Tónlistarskóla Akureyrar þar sem hún lauk framhaldsprófi 2014. Nam einnig klassískan gítarleik og píanóleik á sínum námsferli. Hefur starfað við tónmennta- og tónlistarkennslu undanfarin ár við ýmsa skóla á Eyjafjarðarsvæðinu. Þá hefur hún verið ötull þáttakandi í uppfærslum Freyvangsleikhússins í gegnum tíðina.

Brynjólfur er náttúrufræðingur að mennt og hefur einkum sinnt tónlistargyðjunni með hljómsveit sinni Helga og hljóðfæraleikurunum. Sinnti tónlistarkennslu við Tónlistarskóla Eyjafjarðar í um áratug. Hefur verið nokkuð ötull
þáttakandi í flutningi tónlistar í uppfærslum Freyvangsleikhússins í gegnum tíðina.

ÚR TÓNGARÐINUM er yfirskrift á tónleikum þeirra hjóna á nýútgefnum frumsömdum lögum og kvæðum um eitt og annað er viðkemur lífi í Eyjafjarðarsveit. Lögin og kvæðin eru meira og minna ný af nálinni, samin veturinn 2022-2023. Upptökur fóru fram undir stjórn Hauks Pálmasonar. Verkefnið er sjálfstætt framhald af stuttum sameiginlegum tónlistarferli Sigríðar og Brynjólfs með hljómsveitinni Húsbændur og hjú, sem átti upphaf sitt í sýningu Freyvangsleikhúsins á söngleiknum Þið munið hann Jörund. Tónlistin er fjölbreytt, allt frá völsum yfir í þjóðlagakennd og djassskotin lög. Kvæðin eru mörg hver ort undir viðurkenndum bragarháttum en þó er ekki strangt farið eftir þeim í hvívetna. Sigríði og Brynjólfi til stuðnings munu ýmsir hljóðfæraleikarar úr kunningjahópnum taka þátt í tónlistarflutningum og er þar um auðugan garð að gresja.

 

Hljómsveitina skipa: 

Ingólfur Jóhannsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir : Píanó/hljómborð

Haukur Pálmason: Trommur

Jón Aðalsteinn Brynjólfssson.: Rafbassi

Bergsveinn Þórsson: Kontrabassi

Brynjólfur Brynjólfsson: Gítar

Valmar Väljaots: Fiðla og Harmonikka

Sigríður Hrefna Pálsdóttir: Saxófónn

Sigríður Hulda Arnardóttir: Söngur

Freyr Ragnarsson: Gestasöngur

Bakraddir eru : Brynjólfur Brynjólfsson, Valdís Eyja Pálsdóttir, Sigríður Hrefna Pálsdóttir, Kristín Inga Pálsdóttir, Sigrún Magna Þorsteinsdóttir, Ingólfur Jóhannsson.

 

Gospelkór Eyfirðinga:

Sópran: Kristín Inga Pálsdóttir, Valdís eyja Pálsdóttir, Svanhildur Arnardóttir

Alt: Sigríður Hrefna Pálsdóttir, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Þrúða Gunnhildardóttir

Tenor: Brynjólfur Brynjólfsson, Freyr Ragnarsson, Sigurður Kristinn Pálsson

Bassi: Bergsveinn Þórsson, Einar Ingi Hermannsson, Ólafur Ingimarsson,

 

Karlakórinn Glókollar

Tenor: Brynjólfur Brynjólfsson, Freyr Ragnarsson, Pálmi Reyr Þorsteinsson, Sigurður Kristinn Pálsson

Bassi: Bergsveinn Þórsson, Einar Ingi Hermannsson, Ólafur Ingimarsson, Sverrir Friðriksson

 

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.