Fara í efni
Dags Tími
19 .sep '21 16:00

Brautryðjandinn Sveinbjörn Sveinbjörnsson

Þórarinn Stefánsson píanó

Styrktaraðilar: Menningarfélag Akureyrar, Félag íslenskra tónlistarmanna og Rannís.

Tónleikarnir eru í fyrirlestraformi þar sem sagt er frá ævi og starfi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar (1847 - 1927) í tónum og tali. Útgangspunktur eru píanóverk tónskáldsins. Sveinbjörn var eitt afkastamesta tónskáld okkar þegar kemur að píanótónlist.Hann samdi á fimmta tug píanóverka sem flest hafa hingað til legið óútgefin í Handritasafni Þjóðarbókhlöðunnar. Aðeins tvö píanóverka hans eru nokkuð vel þekkt, Idyl og Vikivaki.

Þórarinn vinnur nú að heildarútgáfu á píanóverkum Sveinbjörns Sveinbjörnssonar á nótnabókum og CD.

Á tónleikunum verður meðal annars flutt fyrsta tónverkið fyrir hljóðfæri sem samið er af Íslendingi, Menuet & Trio, en auk þess önnur fumsamin verk, umritanir Sveinbjörns á eigin sönglögum og útsetningar á íslenskum og skoskum þjóðlögðum.

Þórarinn Stefánsson hóf píanónám við Tónlistarskólann á Akureyri, en lauk kennara- og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1987 undir handleiðslu Halldórs Haraldssonar. Hann stundaði framhaldsnám í Hannover í Þýskalandi hjá Erika Haase prófessor og sótti auk þess einkatíma og námskeið hjá Colette Zérah, Edith Picht-Axenfeld og Vlado Perlemuter. Að námi loknu bjó Þórarinn og starfaði um nokkurra ára skeið í Þýskalandi og Danmörku. Þórarinn hefur komið fram á tónleikum víða um Evrópu sem einleikari og meðleikari með söngvurum og hljóðfæraleikurum. Hann hefur einnig skipulagt fjölda tónleika, meðal annars í Þýskalandi, Danmörku, Grænlandi og Færeyjum. Á síðustu árum hefur Þórarinn gefið út nótnabækur með íslenskri tónlist og leikið inná geisladiska. Þórarinn hefur gert upptökur fyrir sjónvarp og útvarp meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Þórarinn hlaut starfslaun listamanna árið 2007 og aftur árið 2014. Þórarinn Stefánsson kennir við Tónlistarskólann á Akureyri og Tónlistarskóla Eyjafjarðar.