Fara í efni
Ungir semja, fullorðnir flytja
Dags Tími
19 .apr 17:00
Verð: Frítt inn

UNGIR SEMJA, fullorðnir flytja

Uppskeruhátíð Upptaktsins, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna

Upptakturinn gefur ungu fólki tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum með flutningi listafólks. Nú hafa sjö unghöfundar unnið með Gretu Salóme tónlistarkonu og tónlistarstjóra Upptaksins að útsetningu laganna sjö sem komust áfram í ár.

Afrakstur vinnunnar má sjá og heyra á tónleikunum þegar þau verða flutt af atvinnuhljóðfæraleikurum.

Viðburðurinn er opinn öllum og ekki þarf að panta miða.

Ungtónskáldin eru að þessu sinni frá Akureyri

Freyja Rán Kristinsdóttir - Snjóstormur

10 ára úr Glerárskóla

 

Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar

10 ára úr Lundarskóla

 

Hákon Geir Snorrason – Saman

12 ára úr Naustaskóla

 

Ólöf Birna Kristjánsdóttir

11 ára úr Síðuskóla

 

Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin

10 ára úr Giljaskóla

 

Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske

12 ára úr Lundarskóla

 

Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða

10 ára úr Lundarskóla

 

Hljómsveitina skipa tónlistarfólkið:

Emil Þorri Emilsson – slagverk

Eydís S. Úlfarsdóttir - víóla

Eyþór Ingi Jónsson – flygill

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson - bassi

Ágúst Þór Brynjarsson - söngur 

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit:  Greta Salóme Stefánsdóttir

Tónlistarstjóri: Greta Salóme Stefánsdóttir

 

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE

Upptakturinn er hluti af Barnamenningarhátíðinni á Akureyri. 

Öll hjartanlega velkomin!