Fara í efni
Dags Tími
20 .nóv '21 20:00

Tónleikagestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi sem ekki má vera eldra en 48 klst. Nauðsynlegt er að bóka tíma í hraðpróf. Heimapróf eru ekki tekin gild.

Bóka hraðpróf - Hvannavöllum

Bóka hraðpróf - HSN Strandgötu

 

Hvannavellir 10 (gamla Hjálpræðishershúsið)
Frá og með fimmtudeginum 18. nóvember færast hraðprófin sem fóru fram við Borgir að Hvannavöllum 10 (gamla Hjálpræðishershúsið). Þar verður opið til kl 18 á fimmtudögum, kl 20 á föstudögum, 10 - 16 á laugardögum og 10 - 14 á sunnudögum til jóla.

Strandgata 31
Opnunartími fyrir hraðpróf mánudagar, þriðjudagar, miðvikudagar og fimmtudagar 11.00 til 14.00. Föstudagar 11:15 – 16:00. Laugardagar 11:15 – 14:00

 

Upprunalega þríeykið sem stofnaði Todmobile árið 1988, þau Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson gítarleikari, Andrea Gylfadóttir söngkona og Eyþór Arnalds söngvari og sellóleikari koma saman á ný. Einnig koma fram aðrir núverandi kjarna meðlimir Todmobile, þeir Eyþór Ingi Gunnlaugsson söngvari, Kjartan Valdemarsson hljómborðsleikari, trommuleikarinn Ólafur Hólm og Eiður Arnarsson bassaleikari. Saman stíga þau á stokk í Hofi laugardagskvöldið 20. nóvember 2021 og flytja vel valda smelli frá öllum ferli sveitarinnar en þetta verður í fyrsta sinn í rúman áratug sem Eyþór Arnalds kemur fram með Todmobile.

Á seinni árum hefur hljómsveitin opnað leikvöll fyrir erlendar rokkstjörnur sem höfðu áhrif á meðlimi hennar í æsku. í þeirri tónleikaröð höfum við fengið að heyra og sjá Jon Anderson úr YES, Steve Hackett úr Genesis, Nik Kershaw og Live Aid og Ultravox stjörnuna Midge Ure ganga inn í hljóðheim Todmobile og SinfoniaNord.

En núna er þetta back to basics. Sameinuð stöndum við!