Fara í efni
Dags Tími
15 .mar '23 20:00

 

Miðvikudaginn 15. mars 2023 kl. 20:00 verða haldnir tónleikar í Hofi til styrktar minningarsjóði um Þorgerði S. Eiríksdóttur. Á tónleikunum koma fram framhaldsstigsnemendur Tónlistarskólans á Akureyri og flytja fjölbreytta og skemmtilega efnisskrá.

Aðgangur er ókeypis, en tekið er á móti frjálsum framlögum.
 
Þorgerður lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri og var nýkomin til London í framhaldsnám er hún lést af slysförum í febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar ásamt Tónlistarskólanum og Tónlistarfélagi Akureyrar minningarsjóð, til að styrkja efnilega nemendur frá Tónlistarskólanum á Akureyri til framhaldsnáms. Eru tónleikarnir helsti vettvangur til að styrkja sjóðinn, auk þess sem sjóðurinn hefur tekjur af sölu minningarkorta.