Fara í efni
Dags Tími
03 .des '23 12:00

Hið klassíska jólaævintýri um Skrögg verðu sett upp í dansbúning. Ebenezer Skröggur er ríkur og fúllyndur maður. Hann á engan kærleik að gefa og er sama um alla í kringum sig. Vinnumaður hans vinnur myrkrana á milli til að framfleyta fjölskyldu sinni og veikum syni. Á jólanótt heimsækja 3 draugar Skrögg - Draugur fortíðar, framtíðar og nútíðar. Það er spurning hvort þeir hjálpi Skrögg að sjá lífið í nýju ljósi og finni kærleik og ást til náungans?

Verið hjartanlega velkomin á hátíðardanssýningu Steps Dancecenter.