Á skólatónleikum Sirkussveitar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Hofi þann 18. og 19. maí 2026 verður leikin hress og skemmtileg tónlist innblásin af undraverðum tónum sirkusins, meðal annars lög úr teiknimyndinni Dúmbó, Entrance of the Gladiators og Can-Can.
Sirkusstjóri er engin önnur en Margrét Eir.
Barnvæn skemmtun þar sem áhorfendum gefst tækifæri á að taka þátt í sýningunni.
Sóley Björk Einarsdóttir sér um hljómsveitarstjórn og útsetningar.