Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, í samstarfi við Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar, býður upp á fjölskylduævintýrið Sagan af dátanum eftir tónskáldið Igor Stravinsky og rithöfundinn Charles Ferdinand Ramuz.
Verkið fjallar um hermanninn Jósef sem er á leið heim eftir 14 daga frí en á leiðinni hittir hann Kölska í gervi gamals manns og selur honum fiðluna sína í skiptum fyrir bók sem á að færa honum óendanleg auðæfi. Jósef kemst þó fljótlega að því að auðurinn færir honum ekki hamingju og þráir hann þá ekkert heitar en að verða fátækur á ný.
Verkið var frumflutt í Sviss árið 1918 og hefur síðan þá verið sett upp reglulega um allan heim, enda klassísk dæmisaga um gildrur og afleiðingar græðginnar.
Sýningartími er 60 mínútur.
Leikstjóri: Jenný Lára Arnórsdóttir