Dags
Tími
03 .okt '21
15:00
Verð:
1.790 kr.
Kvikmyndin Saga Borgarættarinnar, sem gerð var eftir skáldsögu Gunnars Gunnarssonar árið 1919, markar upphaf kvikmyndagerðar á Íslandi. Í tilefni 100 ára afmælis myndarinnar verður ný stafræn endurgerð hennar með frumsaminni tónlist Þórðar Magnússonar í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frumsýnd samtímis í Hofi á Akureyri, Bíó Paradís í Reykjavík og Herðubíói á Seyðisfirði þann 3. október.