Fara í efni
Dags Tími
15 .mar '24 19:00

Uppistandið Púðursykur hefur slegið rækilega í gegn í vetur og verið sýnt yfir 40 sinnum fyrir fullu húsi í Sykursalnum í Reykjavík.

Púðursykur byggir á grunni uppistandshópsins Mið-Íslands en í sýningunni hafa margir af vinsælustu skemmtikröftum landsins komið fram. Á sýningunni í Hofi föstudagskvöldið 15. mars nk. koma fram Björn Bragi, Dóri DNA, Emmsjé Gauti, Jóhann Alfreð og Jón Jónsson.

Skotheld tveggja klukkustunda hláturskemmtun sem enginn ætti að missa af.