Fara í efni
Dags Tími
06 .des '19 19:00
07 .des '19

Hinir stórskemmtilegu jólatónleikar Norðurljósin verða nú haldnir sjötta árið í röð í menningarhúsinu Hofi. Tónleikarnir eru þekktir fyrir að vera í senn léttir og hæfilega hátíðlegir. Einvala lið tónlistarmanna að norðan koma fram ásamt þjóðþekktum gestasöngvurum og Gospelröddum Akureyrar sem flytja nokkur af ástsælustu jólalögum þjóðarinnar.

 

Söngvarar Norðurljósanna í ár eru þau Ragnhildur Gísladóttir, Jón Jónsson, Magni Ásgeirsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Óskar Pétursson, Birkir Blær Óðinsson og Friðrik Dór Jónsson.

 

Hljómsveit Norðurljósanna skipa sem fyrr Pétur Steinar Hallgrímsson gítar, Haukur Pálmason trommur, Arnar Tryggvason hljómborð, Sumarliði Helgason bassi, Valgarður Óli Ómarsson slagverk og Valmar Valjaots píanó og fiðlu.