Fara í efni
Myndlist
Dags Tími
11 .feb '23 14:00

Guðrún Pálína opnar sýningu sína Andlit/Faces laugardaginn 11. febrúar kl. 14.00-16.00. 

 

Pálína, fullt nafn Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, er fædd 1957 á Akureyri og bjó þar og í Bárðardal fyrstu 18 árin, en flytur þá til Svíþjóðar 1975. Hún flytur aftur til Akureyrar 1991 ásamt eiginmanni sínum, Joris Rademaker. Hún nam málaralist fyrst í Gautaborg 1980-82 og síðar í Hollandi fyrst í AKI (Akademie voor Kunst en Industrie) í Enschede (1982-87) og síðar framhaldsnám í Jan van Eyck Akademie (1987-89) í Maastricht.

 

Pálína hefur þróað sinn persónulega stíl um áratuga skeið og hvert andlitsmálverk hefur sitt andrúmsloft og stílbragð. Andlitsmálverkin leitast við að túlka mannlegt eðli, tilfinningar og sál einstaklingsins. Pálína hefur verið starfandi og afkastamikill málari síðan á námsárunum og sýnt reglulega. Hérlendis og erlendis. Hún var bæjarlistamaður Akureyrar 2013 og fékk starfslaun myndlistarmanna 2016 í hálft ár. Bæði launin nýtti hún til að vinna að sinni myndlist í Berlín.

 

Sýningart titillinn er Andlit/Faces, og ber heiti bókar sem kom út í lok árs 2022. Flest verkin á sýningunni eru einnig til sýnis í bókinni. Öll málverkin eru olíumálverk á málaradúk. Málverk í bókinni spanna feril hennar síðan 1984-2021. Bókin fæst á Akureyri eingöngu í verslun PenninnEymundsson.

Sýningin er opin á opnunartíma Hofs og stendur sýningin til 7.apríl.