Fara í efni
Dags
19 .des '20
20 .des '20
21 .des '20
22 .des '20
23 .des '20
24 .des '20
25 .des '20
26 .des '20
27 .des '20
28 .des '20
29 .des '20
30 .des '20
31 .des '20
01 .jan '21
02 .jan '21
03 .jan '21
04 .jan '21
05 .jan '21
06 .jan '21
07 .jan '21
08 .jan '21
09 .jan '21
10 .jan '21

Myndlistarkonan Freyja Reynisdóttir opnar sýninguna Sannleiks-breytur laugardaginn 19. desember í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri en  Freyja verður sjálf á staðnum frá kl. 16. 

 

Freyja er fædd árið 1989 og hefur undanfarið ár búið og starfað sem myndlistamaður á Akureyri eftir nokkurra ára dvöl í Berlín, Þýskalandi. Hún útskrifaðist úr Myndlistaskólanum á Akureyri árið 2014 og stundar nú meistaranám í frjálsri myndlist við Listaháskóla Íslands. Auk fjölda sýninga hér á landi hefur hún sýnt verk sín, bæði á einka- og samsýningum, í Danmörku, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Frakklandi og á Spáni. Þá er hún einn af stofnendum Kaktus listasamsteypunnar á Akureyri.

 

Freyja segist heilluð af mismunandi skilgreiningum á sannleik. „Í mínum huga er sannleikur víðfeðmari en þau orð sem ég get safnað saman til að lýsa honum. Skilgreiningar á sannleik eru háðar getu mannsins til að tjá skilning hans á honum. Þær eru leiddar af því sem sammælst hefur verið um í heimi tungumálanna, sem við svo notum til að koma hinu þekkta áleiðis,“ segir Freyja.

Nánar upplýsingar um listakonuna má finna á vefslóðinni www.freyjareynisdottir.com

 

Sýningin í Hofi stendur til og með 10. janúar 2021.