Gangverk flytur létta og sumarlega djasstóna á Miðvikudjassi Majó í Hofi
Michael Weaver og Elías Dýrfjörð skipa djass dúettinn Gangverk. Michael leikur á Tenór saxófón en Elías á kontrabassa.
Þeir félagarnir hafa spilað saman á bæði klassískum og rytmískum grundvelli en þetta er í fyrsta sinn sem þeir koma fram sem jassdúett. Þeir munu leika fjölbreytt lög í bæði latin og swing stíl og lofa ljúfri sumar stemmingu.
Hugguleg stemning og sumarlegir djasstónar. Öll velkomin.
Tónleikarnir eru á vegum Majó og Menningarfélags Akureyrar, styrktir af Listsumri 2026