Fara í efni
Dags Tími
01 .nóv '19 20:00

ARG viðburðir kynna með rífandi stolti:

MANNAKORN Í HOFI.

Það eru fáir listamenn sem hafa sett svip sinn jafn sterkt á íslenska tónlistasögu og Mannakorn. Í 40 ár hefur bandið gefið út hvern hittarann á fætur öðrum sem hvert einasta mannsbarn þekkir.

Hver man ekki eftir lögum eins og Reyndu aftur, Einhverstaðar einhvern tímann aftur, Elska þig, Braggablús, Gamli góði vinur, Ég elska þig enn, Óralangt í burtu, Á rauðu ljósi, Sölvi Helgason, Samferða, Garún og Ó þú?

Pálma Gunnars, Magga Eiríks og Ellen Kristjáns til halds og trausts verður landslið hljóðfæraleikara.

Hljómsveitin Mannakorn kemur mjög sjaldan fram á tónleikum núorðið og því er hér um algjörlega einstakan viðburð að ræða.

Forsala miða hefst fimmtudaginn 19. september kl 13:00.