Fara í efni
Dags Tími
07 .jún 14:00
08 .jún
09 .jún
10 .jún
11 .jún
12 .jún
13 .jún
14 .jún
15 .jún
16 .jún
17 .jún
18 .jún
19 .jún
20 .jún
21 .jún
22 .jún
23 .jún
24 .jún
25 .jún
26 .jún
27 .jún
28 .jún
29 .jún
30 .jún
01 .júl
02 .júl
03 .júl
04 .júl
05 .júl
06 .júl
07 .júl
08 .júl
09 .júl
10 .júl
11 .júl
12 .júl
13 .júl
14 .júl
15 .júl
16 .júl
17 .júl
18 .júl
19 .júl
20 .júl
21 .júl
22 .júl
23 .júl
24 .júl
25 .júl
26 .júl
27 .júl
28 .júl
29 .júl
30 .júl
31 .júl
01 .ágú
02 .ágú
03 .ágú
04 .ágú
05 .ágú
06 .ágú
07 .ágú
08 .ágú
09 .ágú
10 .ágú
11 .ágú
12 .ágú
13 .ágú
14 .ágú
15 .ágú
16 .ágú
17 .ágú
18 .ágú
19 .ágú
20 .ágú
21 .ágú
22 .ágú
23 .ágú

Línumál – Vikar Mar 2025

Myndlistarsýningin Línumál eftir Vikar Mar opnar í Hofi á laugardaginn 7. júní kl 14:00 - Öll velkomin!
 
Vikar Mar (f. 1999) er myndlistarmaður búsettur og starfandi á Hjalteyri við Eyjafjörð. Hann vinnur aðallega málverk, þar sem efniskennd, endurtekning og táknmyndir mynda kjarnann í sjónrænni rannsókn hans.
Vikar notar aðallega akrílmálningu á striga, en hefur jafnframt þróað verk á fundna fleti og efni úr nærumhverfinu.
 
Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um land. Vinnustofa hans á Hjalteyri hefur verið opin almenningi reglulega og gegnt hlutverki sem lifandi vettvangur fyrir verk í mótun og samtal við gesti.
 
Í sýningunni Línumál í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri heldur Vikar Mar áfram rannsókn sinni á eðli málverksins sem miðils merkingar, skynjunar og efnis. Á sýninguni dregur hann fram sjónrænt málkerfi sem byggir á síendurtekinni línulegri mótun. Línan er í þessu samhengi bæði formgerð og tákn, hreyfing og ummerki, sem vísa út fyrir hefðbundin mörk túlkunar.
 
Verkin sækja innblástur í hugmyndir um óskiljanlegt ritmál og hvernig sjónræn framsetning getur vakið tilfinningu fyrir merkingu án þess að sú merking sé skýr. Í stað aðferða sem byggja á táknrænum yfirfærslum eða frásagnarlegum ívafi, þróar Vikar abstrakt málverk sem virka fremur sem opnar kerfislegar framsetningar
– eins konar sjónræn málfræði þar sem lesandi stendur frammi fyrir formum sem virðast reglubundin en eru jafnframt lokuð túlkun.
 
Endurtekning gegnir lykilhlutverki í formgerð verkanna. Línur og strik raðast í mynstrakerfi sem kallast á við ritað mál eða skrift, en án þess að lúta merkingarlegum reglum þess. Þessi aðferð staðsetur verkin í huglægum þversniði milli sjónrænnar skynjunar og lestrar, þar sem óvissan um uppruna og tilgang verður hluti af upplifuninni.
 
Yfirborð málverkanna ber með sér efnistengda hugsun – þar sem málningin, lagaskiptingin og strokurnar mynda sjálfstætt frásagnarlag, án þess að vísa í utanaðkomandi heim. Hið sjónræna rými er ekki svið framsetningar heldur sjálfstæður vettvangur hugsunar, efnis og tíma.
 
Línumál býður áhorfandanum ekki skýr svör heldur virkjar hann sem þátttakanda í óljósu lesferli þar sem merking verður sífellt seigfljótandi og aðgengileg aðeins í gegnum nærveru, íhugun og opna skynjun.
 
Verið velkomin á opnun og að þiggja veitingar frá Mói Bistro