Fara í efni
Dags Tími
19 .mar '26 20:00

Tónleikarnir eru 10 laga prógram sem Eik samdi fyrir útskriftartónleikana sína frá Listaháskóla Íslands. Lögin eru öll íslensk djasslög þar sem fjallað er um ástina, óvissuna og hversu óhjákvæmilegt það er að vita ekki neitt.

Eik Haraldsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri. Hún hóf tónlistarnám sitt á óbó í Tónlistarskóla Akureyrar en færði sig yfir í söng þegar hún var 15 ára. Eik lærði fyrst hjá Heimi Ingimarssyni og síðar hjá Þórhildi Örvarsdóttur. Árið 2020 lauk hún framhaldsprófi í rytmískum söng. Eik útskrifaðist af skapandi tónlistarmiðlun vorið 2025 og rytmíska kennarabraut haustið 2026. Eik hefur komið víða fram sem söngkona og hefur unnið að eigin tónlist. Árið 2021 gaf hún út plötuna Lygasögur ásamt Agli Andrasyni.

Hljómsveitina skipa:
Ludvig Kári Forberg á píanó og víbrafón
Alexander Grybos á gítar
Hlynur Sævarsson á bassa
Andri Eyfjörð á trommur
Guðjón Steinn Skúlason á sópran og tenór saxófónn
Micheal Weaver á alto saxófónn
Tobias Þórarinn Matharel á trompet
Lára Rún Keel Kristjánsdóttir á trompet
Einar Bjarni Ramos Björnsson á básúnu

Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóðnum.