Fara í efni
Dags Tími
19 .jún '22 14:00

Íslenska Óperan í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar býður nú í fyrsta sinn uppá Kúnstpásu í Menningarhúsinu Hofi. Á  Kúnstpásum koma fram vel þekktir söngvarar í bland við þá sem eru að kynna sig til leiks á óperusviðinu.

Á þessum tónleikum sem bera yfirskriftina "Mín fagra sól" koma fram Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo sópran Lára Bryndís Eggertsdóttir sembal, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðla og Steinunn A. Stefánsdóttir selló. Þær flytja þekktar barrokk aríur m.a. eftir Purcell, Corelli og Handel. Sigríður Ósk kemur reglulega fram í óperuuppfærslum, óratóríum og á ljóðatónleikum hérlendis og erlendis. Hún hefur sungið óperuhlutverk hjá Íslensku Óperunni m.a. hlutverk Rosinu í Rakaranum frá Sevilla eftir Rossini og Floru Bervoix í La Traviata eftir Verdi sem sýnd var 2019 og aftur í Hörpu og í Hofi á Akureyri í nóvember 2021 en það var í fyrsta sinn sem óperusýning var sýnd í Hofi í fullri sviðsetningu. Sigríður Ósk hefur einnig komið fram hjá Glyndebourne Óperunni, English National Opera, English Touring Opera, Iford Opera og Classical Opera svo eitthvað sé nefnt.

Enginn aðgangseyrir er að tónleiknum og ekki þarf að panta miða.

Verið öll velkomin!