Fara í efni
Dags Tími
08 .mar 16:00
Verð: 9.900 kr.

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands heiðrar Jón Nordal.

Tónskáldið Jón Nordal fæddist þann 6. mars 1926 og því verða 100 ár liðin frá fæðingu hans í mars 2026. Af því tilefni mun Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytja tvær af perlum Jóns, Óttusöngvar að vori fyrir tvo einsöngvara, kór og sinfóníuhljómsveit og Konsert fyrir selló og hljómsveit. Einnig verður frumflutt verk eftir Daníel Þorsteinsson sem útnefndur var bæjarlistamaður á Akureyri árið 2000.
Jón Nordal er eitt merkasta og eftirtektaverðasta tónskáld íslandssögunnar og vakti ungur athygli. Hann var t.a.m. aðeins 19 ára þegar fiðluverkið „Systurnar í Garðshorni“ var flutt á listamannaþinginu 1945.

Stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands: Bjarni Frímann Bjarnason

Einsöngvari: Harpa Ósk Björnsdóttir

Einleikari á selló: Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir.

Ásamt: Hljómeyki og Kór Akureyrarkirkju.