Fara í efni
Dags Tími
22 .des '19 16:00

Jólatónleikar Jóhönnu Guðrúnar og Eyþórs Inga ásamt Gospelkór og Stórhljómsveit Davíðs Sigurgeirssonar.

Jóhönnu Guðrúnu og Eyþór Inga þarf vart að kynna, enda eru þau meðal fremstu söngvara þjóðarinnar.

Tónleikarnir fóru fram í fyrsta skiptið fyrir þrennum húsfyllum í Háskólabíó á síðasta ári og vöktu þeir gríðarlega lukku og komust færri að en vildu.

Því hafa Jóhanna Guðrún og Eyþór Ingi ákveðið að endurtaka leikinn ár.

 

Ásamt Jóhönnu Guðrúnu og Eyþóri Inga verður hljómsveit skipuð fremstu hljóðfæraleikurum þjóðarinnar undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar.

Útsetningar, Gítar og Hljómsveitarstjórn : Davíð Sigurgeirsson
Trommur : Benedikt Brynleifsson
Bassi : Valdimar Olgeirsson
Hljómborð Tómas Jónsson
Hljómborð og Gítar : Helgi Reynir Jónsson
Trompet og fl. : Ari Bragi Kárason
Saxafónn og fl. : Steinar Sigurðarson

Einnig mun landslið tæknimanna sjá um hljóð, mynd og ljós.

Gospelraddir Akureyrar

Tónleikarnir verða samanbland af skemmtilegum jólastuðlögum, gæsahúðarlögum og glensi.

Hjartað Lyftir Mér Hærra https://www.youtube.com/watch?v=o3zhdf7ip1U

Vetrarsól https://www.youtube.com/watch?v=DaFusQt1EoQ

Hallelujah https://www.youtube.com/watch?v=T4qW4gZ4ZKE