Nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands & Tónlistarskólans á Akureyri.
Áttatíu ára afmælisári Tónlistarskólans á Akureyri lýkur í janúar 2027. Af því hátíðlegatilefni leiða Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Tónlistarskóli Akureyrar saman hesta sína og fagna nýju ári í álfhömrum Hamraborgar. Það verður heljarinnar veisla og mikið um dýrðir - íslensk sönglög og rímnadansar stíga í vænginn við sveiflu Vínarvalsa svo kristalsljósakrónurnar dúa.
Er Dóná ísi lögð? Svar við því fæst á þessum tónleikum, sem enginn skyldi missa af.
Flutt verður tónlist eftir m.a. Atla Heimi Sveinsson, Ingibjörgu Þorbergs, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Johann Strauss yngri.
Flytjendur:
Kristján Jóhannsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Nemendur Tónlistarskólans á Akureyri