Fara í efni
Dags Tími
21 .jan '21 20:00

 

Menningarhúsið Hof býður menningarþyrstum íbúum landsins upp á tónleikaröðina Í HOFI & Heim í desember og janúar.

Tónleikarnir fara fram á sviði Hamraborgar fyrir framan gesti í sal, fjöldinn takmarkast við gildandi sóttvarnarreglur hverju sinni, en þeim verður einnig streymt á mak.is svo áhorfendur geta haft það huggulegt og notið tónleikanna líka í sófanum heima.

Á þessari tónleikaröð verður kynslóðunum teflt saman. Ungt listafólk frá Akureyri kemur fram með sér reyndara listafólki svo úr verður nýr og forvitnilegur vinkill um leið og kunnuglegheitin eru til staðar. Listafólkið mun flytja bæði þekkt lög og sín eigin svo allir fái að njóta sín. Allir tónleikarnir hefjast kl. 20.

Söngkonan Andrea Gylfadóttir hefur gefið út fjölda hljómplatna með hinum ýmsu hljómsveitum og listamönnum. Síðustu misserin hefur hún stundað kennslu við Tónlistarskólann á Akureyri. Einar Óli er laga- og textahöfundur frá Húsavík sem kemur fram undir listamannsnafninu iLo. Hann stundar nám við Tónlistarskóla Akureyrar og vinnur nú að sinni fyrstu plötu, Mind Like Maze, sem er væntanleg á árinu. Tónleikar þeirra Einars og Andreu munu samanstanda af verkum eftir þau sjálf í bland við verk annarra.

Tónleikaröðin Í HOFI & Heim er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.