Tónverkið "Hver vill hugga krílið?" við sögu Tove Jansson í þýðingu Þórarins Eldjárn verður flutt á Ísafirði, Akureyri og Selfossi í samstarfi við barna-og ungmennakóra á þessum stöðum í mars-apríl 2020. Að flutningnum á Akureyri standa Unglingakór Akureyrarkirkju og Barna- og æskulýðskórar Glerárkirkju. Bandoneonleikari er Olivier Manoury, sögumaður Egill Ólafsson og stjórnandi Guðmundur Óli Gunnarsson.
Viðburðurinn hlaut styrk frá listsjóðnum VERÐANDI.