Nemendur í 5.-6. bekk Glerárskóla heimsækja þrjá listamenn á Akureyri og skrásetja heimsóknina með ipad. Nemendur vinna svo málaða andlitsmynd af listamönnunum og setji inn á hana jafnframt það sem þeim fannst spennandi og áhugavert. Jafnframt eru sýnd myndbönd frá heimsókninni og skissur sem nemendur unnu í hugmyndavinnu.
Markmið með verkefninu er að gefa nemendum gott tækifæri til að kynnast nánar listafólki, sköpunarferli, vinnuaðstöðu og umhverfi. Jafnframt að gefa sýningargestum tækifæri til að upplifa sýn barna á listafólk.
Umsjón með verkefninu hefur Elsa María Guðmundsdóttir, MA í menningarstjórnun og sjónlistakennari í Glerárskóla.
Listafólkið sem var heimsótt eru Guðmundur Ármann Sigurjónsson, Egill Logi Jónasson (Bæjarlistamaður Akureyrar 2025) og Arna Guðný Valsdóttir.
Mynlistarsýningin er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar og unnin í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar.