Fara í efni
Myndlistarsýning
Dags
04 .des
05 .des
06 .des
07 .des
08 .des
09 .des
10 .des
11 .des
12 .des
13 .des
14 .des
15 .des
16 .des
17 .des
18 .des
19 .des
20 .des
21 .des
22 .des
23 .des
24 .des
25 .des
26 .des
27 .des
28 .des
29 .des
30 .des
31 .des
01 .jan
02 .jan
03 .jan
04 .jan
05 .jan
06 .jan

Jonna Jónborg Sigurðardóttir (f.1966) heldur sýningu sína Hlýnun í Hofi. 

Jonna notar myndlist sína til að vekja athygli á samfélagslegum þàttum. Verkin á sýningunni eru óhefðbundinn textílverk sem vísa í ruglið og bullið í neyslu okkar og það sem er að gerast í heiminum. Hamfara hlýnun, bràðnun jökla og fleira. Þar eru líka Skólphreinsistöðvar og móðursýki.

„Verk mín eru öll unnin úr endurvinnslu efnum. Ég nota lopa og garnafganga sem ég hef tekið við frá öðrum og margt sem annars hefði endað í ruslinu, ég geng svo langt að tvinna saman stutta spotta og nýti allt. Stæðsti partur af efnivið mínum er mikið magn af mjög vel prjónuðum bútum sem íbúi á Hlíð, Herborg Kàradóttir prjónaði, en hún þjàðist af Alzheimer og lést 2021. Mér þykir vænt um að fá að nota handverk hennar og gera það að mínu. Að lokum hvet ég fólk til að hugsa um neyslu sína, maður byrjar á sjàlfum sér,“ segir Jonna.

Jonna útskrifaðist úr màlunardeild Myndlistarskólans á Akureyri 1995 og úr fatahönnun frá København Mode og Design skolen 2011. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og verið virk í myndlistar lífi à Akureyri. Jonna à verk í opinberri eigu.