Fara í efni
Listasumar
Dags Tími
09 .júl '20 17:00

Duo hlÆ samanstendur af þeim Heiði Láru Bjarnadóttur sellista og Agnesi Eyju Gunnarsdóttur fiðluleikara. Þær stunduðu báðar klassískt hlóðfæranám við Listaháskóla Íslands. Agnes Eyja lauk bakkalárgráðu sinni hér heima en Heiður Lára hélt til Maastricht og hlaut sína gráðu þar. Þær halda nú báðar til mastersnáms í Hollandi í haust.

Í Hömrum þann 9.júlí flytur Duo hlÆ fjölbreytta tónlist fyrir fiðlu og selló. Á dagskrá verður tregafullt en blítt barokk sem og tvö gjörólík verk frá 20.öld, þrungin tilfinningum og dansi.

 

Prógram:

Jean-Marie Leclair: Fiðlusónata nr.1 í a-moll, op.1. (1723)
I. Adagio
II. Allemanda
III. Aria
IV. Giga

 

Bohuslav Martinu: Dúó nr.2 fyrir fiðlu og selló, H.371 (1958)
II. Adagio

 

Reinhold Glière: 8 verk fyrir fiðlu og selló, op.39 (1909)

I. Prélude
V. Intermezzo
II. Gavotte
III. Berceuse
VI. Impromptu
IV. Canzonetta
VIII. Etude
VII. Scherzo

 

Tónleikarnir eru hluti af Listasumri.