Fara í efni
Dags Tími
10 .okt 20:00
Verð frá 9.990 kr.

Í yfir 40 ár hefur Helgi Björns sungið með þjóðinni. Lög hans lifa með okkur. Í gleði og gráti, í söknuði og sælu, í dansi og á dimmum dögum. Nú stíga Helgi Björns og Reiðmenn vindanna á stokk í Hofi, ásamt sérstökum gestum, með tónleika sem fanga þennan sönglagaarf.

Þetta eru lögin sem við eigum saman og höfum sungið kynslóð fram af kynslóð.

- Við þekkjum augnablikið þegar þú komst í hlaðið á hvítum hesti.

- Við munum þegar vor var í augum þér.

- Við höfum riðið sem vindurinn, staðið í stormi og sungið okkur í gegnum myrkur og ljós.

Þetta kvöld verður eins konar ferðalag minninganna þar sem við upplifum kraft og hlýju, rokk og rómantík, sögur og samhljóm.

Að hætti Reiðmanna, sem er hljómsveit í toppformi, verður stemningin lifandi, einlæg og full af orku - þar sem salurinn syngur með. Þetta verða meira en bara tónleikar.

Þetta verður kvöld þar sem minningar lifna við og nýjar verða til.

Tryggðu þér miða í tíma, þar sem Hofið fyllist hratt þegar vindar rísa.