Fara í efni
Dags Tími
18 .des '22 21:00

Tónlistarkonan Bríet ætlar að halda hátíðlega kósýtónleika með kærastanum sínum Rubin Pollock, og besta vini hans Þorleifi Gauki, og skapa fyrir ykkur hlustendur einstaka stemningu. Tónleikarnir verða kósý, vinalegir og skemmtilegir, þar sem nánd þeirra og útgeislun smitast beint til áhorfenda. Á efnisdagskrá verða lög Bríetar af hennar fyrstu plötu, ‘Kveðja, Bríet’ í rólegum búningi, ásamt vel völdum jólalögum. Ekki missa af þessu tækifæri til þess að losna frá öllu stressinu í aðdraganda jólanna og hlusta á ljúfa tóna.